Refund policy

Um öll vörukaup hjá Öryggisdeildinni ehf. gilda Íslensk lög um ábyrgðarskilmála. 

SKIPTI- OG SKILARÉTTUR
  • Skilaréttur er 30 dagar.
  • Kvittun er skilyrði fyrir vöruskilum.
  • Varan þarf að vera í upprunalegum umbúðum, óopnuð, ónotuð og óskemmd.
  • Vara sem sótt var til seljanda skal skilað þangað sem hún var keypt.
  • Ekki er hægt að skila:             
      - Skorinni metravöru líkt og Cat5 eða Cat6 strengjum.
      - Útsöluvöru né B-vöru.
  • Andvirði skilavöru er endurgreidd með sama greiðslumiðli og hún var keypt með.

  • Skilareglur takmarka ekki lögbundna neytendavernd.

  • Viðskiptavinur greiðir sendingarkostnað sem hlýst við vöruskil.

Lög um neytendakaup:  https://www.althingi.is/lagas/145a/2003048.html

Lög um þjónustukaup:  https://www.althingi.is/lagas/145a/2000042.html

 

ÁBYRGÐ

  • Ábyrgð á vörum Öryggisdeildar gildir í 2 ár frá kaupdegi.
  • Ábyrgð til fyrirtækja (annara en einstaklingskennitölu) er 1 ár frá kaupdegi.
  • B-vörur og sýniseintök seldar sem slíkar eru með 1 árs ábyrgð.
  • Framvísa þarf kvittun og/eða staðfestingu á kaupum til að ábyrgð sé gild.
  • Ábyrgð gildir aðeins um framleiðslugalla en ekki eðlilegt slit vegna notkunar eða erfiðra aðstæðna á notkunarstað.
  • Til að viðhalda ábyrgð þarf að fylgja leiðbeiningum um hvernig á að meðhöndla vöruna.

Ef ábyrgðarmál kemur upp þarf að hafa kvittun eða staðfestingu á kaupum tilbúna.
Hægt er að koma við hjá Öryggisdeildinni eða hafa samband í síma 839-9999 eða með tölvupósti á netfangið:  eftirlit@oryggisdeildin.is