Privacy policy
Persónuverndarstefna
Öryggisdeildin ehf. Leirdalur 10, 190 Vogar kt. 690818-0860 ber ábyrgð á vinnslu og meðferð persónuupplýsinga sem unnið er með í starfsemi félagsins og telst því ábyrgðaraðili að vinnslunni samkvæmt lögum um persónuvernd.
Öryggisdeildin leggur mikla áherslu á að öll vinnsla upplýsinga sem varða þig sé eins vönduð og kostur er á. Með það í huga höfum við sett okkur reglur um vinnslu persónuupplýsinga sem er ætlað að tryggja að starfsmenn okkar vinni samkvæmt persónuverndarlögum og í samræmi við góða viðskiptahætti.
Hér fyrir neðan eru spurningar og svör sem er ætlað að hjálpa þér að skilja reglurnar betur. Einnig eru lykilhugtök varðandi persónuvernd útskýrð.
Hvaða gögnum er safnað
Það eru eingöngu upplýsingar sem viðskiptavinir skrá sjálfir við kaup á vefsíðunum Sedig.is, Ahyggjuleysi.is, Oryggisdeildin.is og Oryggismyndavelar.is Shopify geymir þessar upplýsingar og fylgja GDPR löggjöfinni í hvívetna.
Varðveisla og öryggi gagnanna
Öryggisdeildin hefur öryggi að leiðarljósi við meðferð og vinnslu persónuupplýsinga. Aðgangsstýringarstefna hefur verið sett í því skyni og verklag innleitt um aðgangsheimildir starfsmanna og umboðsmanna. Með því viljum við tryggja að einungis þeir sem þurfa að vinna með upplýsingarnar hafi aðgang að þeim.
Öryggisdeildin útvistar rekstri vefsíðu/vefverslunar og sölukerfi félagsins og gerir kröfur til vistunar- og þjónustuaðila sinna um að þeir uppfylli kröfur um vernd persónuupplýsinga og upplýsingaöryggi.
Þessir aðilar eru Shopify, RVK-Marketing, Straumur og Visa/Mastercard.
Öryggisdeildin hefur sett sér skjalavistunaráætlun sem hefur að geyma upplýsingar um hversu lengi varðveita skuli gögn, þ.m.t. persónugreinanleg gögn. Geymslutími gagnanna er ákvarðaður út frá mismunandi nauðsyn á varðveislu eftir eðli þeirra. Ræðst geymslutími gagnanna m.a. af lögum og reglum, svo sem um fyrningu krafna sem geta verið 4 ár, lögum um bókhald sem eru 7 ár og reglum um rafrænt eftirlit sem gerir ráð fyrir 30 daga varðveislu að hámarki. Starfsumsóknum er eytt eftir 6 mánuði.
Þegar ekki er lengur talin nauðsyn á varðveislu gagnanna er þeim eytt með óafturkræfum hætti. Í því skyni hefur Öryggisdeildin sett sér reglur um eyðingu gagna.
Uppfært 11.05.2025
Persónuverndarfulltrúi Öryggisdeildin ehf.
Viljir þú koma fyrirspurn til persónuverndarfulltrúa eða koma með ábendingu um eitthvað sem mætti betur fara þá má hafa samband á uppgefið netfang hér að neðan. Should you have any questions about our privacy practices or this Privacy Policy, or if you would like to exercise any of the rights available to you, please call or email us at
Netfang: eftirlit@oryggisdeildin.is