APP fyrir Öryggiskerfi + snjallbúnað - Leiðbeiningar

Leiðbeiningar SmartLife appið fyrir Öryggiskerfi, Öryggisdeildin og
annan snjallbúnað með TUYA merkingu.

1.  Sækja SmartLife appið í Appstore eða PlayStore
2.  veldu sign up neðst
3.  veldu Iceland
4.  skráir netfangið þitt sem verður notendanafn,
5.  veldu Send Code, færð þá sendan kóða á uppgefið netfang
6.  slærð kóðann inn
7.  veldu þér lykilorð 
8.  hakar í I have read and agree to…
9.  velur Sign Up neðst.

Þá ertu komin með notanda í SmartLife appið og loggar þig næst inn.
Hver notandi /sími þarf sinn eigin notanda/account.
Til að deila öryggiskerfi og snjallbúnaði á fleiri notendur er einfaldlega farið í account/share/setja inn username og velja aðgangstýpu, notandi eða stjórnandi kerfis.
Þú getur valið hvort aðeins einu tæki sé deilt eða öllum á aðgangi.

Uppsetning/tenging Öryggiskerfis:
1. Hafðu lykilorð þráðlausa netsins við höndina þar sem Öryggiskerfið verður uppsett. 
2.  Síminn eða snjalltækið sem þú notar við uppsetningu þarf að vera á sama neti og
Öryggiskerfið meðan á uppsetningu stendur. 
3.  Settu móðurstöð/talnaborð öryggiskerfis í samband við rafmagn.
4. 
Opnaðu SmartLife appið.
5.  Veldu + efst í hægra horni eða Add Device.
6.  Nú
kemur sjálfkrafa upp í appinu: device found, Öryggiskerfi, Öryggisdeildin, veldu add/accept.
7.  Allur búnaður er fyrirfram paraður við öryggiskerfið.
8.  Fjarlægðu litlu hvítu flipana úr hreyfiskynjara og hurðanema, þannig virkjast rafhlöður. 9.  Festu upp hreyfiskynjara og hurðanema, opnaðu hurðina og gakktu í geisla hreyfiskynjara, notaðu fjarstýringar til að setja á vörð og taka af verði, þá er búnaðurinn virkur.
10.  Passaðu að þrífa vel og þurrka undir þann búnað sem er límdur.
Glugga/hurðalímmiðar um vöktun fylgja með og nú er best að líma þá.

Gott er að hafa í huga að hreyfiskynjari sé hafður í smávegis halla, horfi ekki beint fram og ekki á móti sól, þannig fara þeir í fals útköll. Hreyfiskynjari sem horfir á gluggatjöld við opin glugga mun skynja hreyfingar gluggatjalda þannig að gott er að passa að gluggar séu lokaðir.

Fyrirspurnir má senda á netfangið:   egill@oryggisdeildin.is